Mona
Ögmundur sópar tilAndófsmaðurinn Ögmundur Jónasson hefur stöðugt verið að sanna sig í hreinsunarstarfinu. |
|
Rólegur á skyndibitanum. K Fat hefur bætt mikið á sig.
Fyrrum eiginmaður poppprinsessunnar Britney Spears, Kevin Federline, virðist hafa það gott á spena söngkonunnar en rapparinn er búinn að bæta vel á sig undanfarna mánuði. K-Fed sem á tvo syni með Britney þarf sennilega ekki að hafa áhyggjur af peningum framar eftir að hafa verið giftur söngkonunni.
Og sennilega ekki heldur kærastan hans, Victoria Prince. K-Fed er ekki vinsælasti maðurinn í Bandaríkjunum og sér í lagi ekki hjá aðdáendum Britney en það var eftir skilnaðinn við hann sem að söngkonan bortnaði niður andlega og þurfti að leggjast inn á geðdeild.
K-Fed, sem nú er uppnefndur K-Fat, er þó þrátt fyrir allt ekki dauður úr öllum æðum, heldur reynir að selja einhverri sjónvarpsstöðinni hugmynd að raunveruleikaþætti þar sem hann berst við bumbuna.